Feðginaflokkur í Vatnaskógi 1.-3. júní: Skemmtileg dagskrá fyrir feðgin
Helgina 1.-3. júní verður feðginaflokkur haldinn í Vatnaskógi. Flokkurinn er ætlaður feðrum og dætrum frá 6 ára aldri.
Í feðginaflokki fer fram skemmtileg dagskrá fyrir feður og dætur, og áhersla lögð á góðar samverustundir í Vatnaskógi, bæði innandyra og úti. Feðgin geta farið í gönguferðir, föndrað, sungið, skemmt sér á bátum, í íþróttahúsinu , á kvöldvökum, á fræðslu-og samverustundum og ótalmargt fleira.
Verð í feðginaflokk er kr.11.900 fyrir einstakling. Skráning fer fram í síma 588-8899 eða á skraning.kfum.is.
KFUM og KFUK – messa í Hallgrímskirkju sunnudaginn 20. maí kl. 11.
Næsta sunnudag, þann 20.maí, verður sérstök KFUM og KFUK-messa haldin í Hallgrímskirkju í Reykjavík kl.11. Messan er haldin í tilefni af afmæli sr. Friðriks Friðrikssonar, stofnanda KFUM og KFUK á Íslandi, sem er um þetta leyti.
Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson þjónar fyrir altari, og félagar í KFUM og KFUK aðstoða og taka virkan þátt í messunni.
Skráning í sumarbúðir og leikjanámskeið
Nú eru aðeins þrjár vikur þar til fyrstu flokkarnir halda í sumarbúðir KFUM og KFUK þetta sumarið. Skráning er í fullum gangi enda ennþá hægt að bæta við glöðum og hressum krökkum í marga flokka. Skráning fer fram á skraning.kfum.is.
Birgir í stjórn KFUM í Evrópu
I dag var Birgir Urbancic Ásgeirsson kjörin í stjórn KFUM í Evrópu. Birgir er 25 ára gamall og hefur verið virkur í starfi KFUM og KFUK á Íslandi í mörg ár.
Fulltrúar KFUM og KFUK á Íslandi á Evrópuþingi KFUM í Prag 16.- 20. maí
Evrópuþing KFUM er haldið árlega og þar fer fram aðalfundur Evrópusambands KFUM. Þingið er að þessu sinni haldið í Prag í Tékklandi og hófst í dag og stendur yfir dagana 16.-20. maí.
Fjóla – Skemmtilegt leiðtoganámskeið
Miðvikudaginn 23. maí kl. 17 verður skemmtilegt leiðtoganámskeið í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi. Á námskeiðinu verður fjallað um framkomu frá ýmsum hliðum.
Spennandi sumar framundan – Skráning í fullum gangi
Skráning stendur nú sem hæst yfir í sumarbúðir og leikjanámskeið KFUM og KFUK fyrir komandi sumar.
Skráning fer fram í síma 588-8899 í Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK á Holtavegi 28 og í Sunnuhlíð 12 á Akureyri og á skraning.kfum.is (netskráning). Vinsamlega athugið að ef netskráning er gerð, gengur skráningin aðeins í gegn ef dvalargjald er greitt að fullu í einni greiðslu.
Boðið er upp á dreifingu greiðslna dvalargjalda, en þá hægt er að hafa samband við Þjónustumiðstöð KFUM og KFUK.
Sumarbúðir KFUM og KFUK á Facebook
Nú hafa allar sumarbúðir KFUM og KFUK sett upp Facebook síður. Þar má finna upplýsingar, tilkynningar og vísanir í fréttir um hverjar sumarbúðir fyrir sig.
Ferð til Ítalíu í sumar: Tilboð frá Sjálfboðaliðasamtökunum SEEDS
Siðareglur í starfi KFUM og KFUK
KFUM og KFUK er aðili að Æskulýðsvettvangnum ásamt UMFÍ, Skátunum og Slysavarnarfélaginu Landsbjörg. Nú í vor voru unnar og samþykktar nýjar siðareglur sem gilda fyrir allt starfsfólk og sjálfboðaliða æskulýðsvettvangins.
Framkvæmdir í fullum gangi á Hólavatni
Nýbyggingaframkvæmdir við sumarbúðir KFUM og KFUK að Hólavatni eru nú á lokasprettinum fyrir sumarið. Á Hólavatni í Eyjafirði hófst sumarbúðastarf árið 1965 og allt fram til þessa dags hefur starfsemin farið fram í einu ríflega 200 fermetra húsi á tveimur hæðum. Í ágúst 2008 var tekin skóflustunga að nýju 210 fermetra húsi og nú tæpum fjórum árum seinna er draumurinn að verða að veruleika og í sumar munu börnin við Hólavatn fá að njóta þess að dvelja í nýjum herbergjum og eldri svefnaðstöðu hefur verið breytt í tómstundarými með borðtennisborði, fótboltaspili og fönduraðstöðu.
Hjóladagur á Vinagarði
Í dag er hjóladagur á leikskólanum Vinagarði, leikskóla KFUM og KFUK. Krakkarnir mættu mörg hver með hjólin sín í skólann. Nú er búið að loka af bílastæðinu fyrir framan leikskólann svo allir geti notið þess að æfa sig á öruggum stað. Að sjálfsögðu voru allir með hjálm.
Skemmtilegt sumar framundan: Skráning í síma 588-8899

Undirbúningur fyrir komandi sumar í öllum fimm sumarbúðum KFUM og KFUK, Ölveri, Vatnaskógi, Hólavatni, Kaldárseli og Vindáshlíð er nú í fullum gangi, og einnig fyrir leikjanámskeið KFUM og KFUK, sem verða á fjórum stöðum í sumar.
Fjölmörg börn hafa þegar verið skráð í dvalarflokka í sumarbúðum og á leikjanámskeiðin, en enn eru laus pláss.
Síðasta sunnudagssamkoma vetrarins næsta sunnudag, 29. apríl
Næsta sunnudag, 29. apríl, verður síðasta sunnudagssamkoma vetrarins haldin í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28 kl.20. Yfirskrift samkomunnar er: „Guð snýr öllu til góðs” (Sálm 126) – Þeir sem sá með tárum munu uppskera með gleðisöng. Séra Ólafur Jóhannsson verður ræðumaður kvöldsins.
Hljómsveitin Tilviljun? stjórnar samkomunni, syngur og leikur tónlist af sinni kunnu snilld. Snorri Waage og Kristín Skúladóttir verða samkomuþjónar.
Verndum þau: Góð þátttaka starfsmanna og sjálfboðaliða

Í vikunni fór fram Verndum þau – námskeið fyrir starfsfólk og sjálfboðaliða KFUM og KFUK.
Námskeiðið er haldið af KFUM og KFUK, í samstarfi við UMFÍ og BÍS, og fjallar um hvernig hvernig bregðast skal við grun um hvers kyns ofbeldi eða vanrækslu í garð barna og ungmenna.
Um 40 starfsmenn og sjálfboðaliðar á vegum félagsins sóttu námskeiðið, sem var haldið í húsi KFUM og KFUK á Holtavegi 28. Kennari á námskeiðinu var Ólöf Ásta Farestveit, uppeldis – og afbrotafræðingur, sem starfar í Barnahúsi og hefur mikla reynslu af barnaverndarmálum.


















